Færsluflokkur: Bloggar
14.5.2006 | 01:50
Halló allir!
Jæja allir !
Það er aldeilis búið að þræla mér út núna. Ég og mamma fórum í klukkutíma göngu, seint í gærkvöldi og ég nennti ekki á lappir fyrr en um hádegi í dag. Og hvað haldiði að mömmu hafi svo dottið í hug? Jú, að labba til ömmu og frænku í Hæðargarðinum. Og við löbbuðum og löbbuðum. Bjarni(balli spæjó) hann hjólaði með okkur. Þegar við komum til ömmu, þá fann ég að það var ennþá voða spennandi lykt af Rympu eftir lóðaríið. Og ég var alveg að tapa mér. Amma hló að mér og sagði að ég væri bjáni..
Mamma og Bjarni ákváðu að labba líka tilbaka, svo við löbbuðum í 2 tíma samanlagt. Ansi gott hjá okkur ekki satt?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2006 | 00:46
Hæ, ég heiti Snoopy
Hæ allir. Mamma mín kallar mig engil þessa dagana. Ég er nefnilega orðinn svo stilltur.
Kannski af því ég er orðinn 2 ára. Við fórum í langa göngu í gær, vorum alveg í 1 1/2 tíma. Það var rosalega gaman. Svo fórum við aftur í dag.Þurftum að fylgja Bjarna í afmæli,en þá var mér svolítið heitt. Það er ekki auðvelt að vera í svörtum pels í 16 stiga hita og sól. ![]()
Bæ í bili.
Þeir sem kíkja á síðuna mega endilega skrifa í gestabókina, þá verður Bjarni nefnilega svo glaður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Tenglar
Bella mamma
Bella og Ásta blogga
Ættingjar og vinir
Allir ættingjar mínir og vinir
Hundalíf
Ættbókin mín og árangur á sýningum
- HRFÍ Hundaræktunarfélag Íslands
- Ættbókin mín
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 13263
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar















