Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Sumarið mætt..

Ekki get ég nú sagt að mamman hafi verið dugleg í blogginu undanfarið og skánar trúlega ekki með hækkandi sól. Af okkur er bara fínt að frétta. Að vísu lenti ég í því einn morguninn að geta bara ekki staðið í lappirnar. Mamman og Andy (sem kom til að bera mig með mömmu) fóru með mig til dýra sem sagði að ég hefði fengið í bakið og gaf mér heavy skammt af verkjalyfjum. Eftir erfiðar vikur uppá síðkastið ákvað familian bara með skömmum fyrirvara að skella sér í útilegu um helgina þrátt fyrir lélega veðurspá. Við pökkuðum því saman og skelltum okkur á nesið. Þar vorum við nánast ein á fínu tjaldstæði við ströndina. Veðrið var ekki alveg að mínu skapi á laugardeginum, ausandi rigning og rok en ég lagði mig bara oft og hlustaði á liðið sem sat og spilaði veiðimann og yatzy í hristingnum. Á sunnudaginn lét sú gula sjá sig og ég fékk aðeins að hlaupa um (með leyfi tjaldvarðar) því það var enginn annar á svæðinu. En mér fyndist nú meira gaman að fara svona í útilegur ef ég þyrfti ekki að hristast í bíl í marga klukkutíma. Væri gott að geta beamað sig á milli staða eins og í Star Trek. En nú eru allir nema pabbi komnir í sumarfrí svo mér leiðist ekki.


Jæja

Snoopy lúllar Ætli það sé ekki kominn tími á að blogga yfir jólin svona þegar páskarnir eru búnir. Af mér er svo sem ekki mikið að frétta. Ég var hjá Ástu og Andy um jólin á meðan hinir í fjölskyldunni fóru til afa í Danmörku. Það var ágætt, fullt af gestum frá útlöndum og mikið stuð.

Mamman er alltaf að læra og situr og glápir á tölvuna alla daga og dæstir og anvarpar. Ég reyni að hlýja henni aðeins á tánum á meðan og færa henni alla skó sem ég finn ef hún skyldi vilja fara út. Ef það er kalt úti þá sæki ég líka húfur og vettlinga handa henni. En hún nennir ekki nógu oft að klæða sig í þetta allt.

Um daginn fóru þau síðan aftur til útlanda og af því Bella mamma var að fara að lóða þá þurfti ég að fara á hundahótel í fyrsta skipti. Það fannst mér ekki gaman. Ég var logandi hræddur við alla hundana sem geltu og geltu á mig. En ég gelti svo bara á móti. Mamman var alveg steinhissa þegar hún kom heim því ég var alveg raddlaus í marga daga. Vona að ég þurfi aldrei að fara á svona hótel aftur. En ég fékk nýja fína strákaól með göddum svo ég er mikill töffari núna.

Hjólið

Pabbinn er búinn að kaupa sér mótorhjól. Ég er ekki hress með það. Í fyrsta lagi er mikill hávaði í svoleiðis tæki og svo held ég alltaf að Palli frændi sé að koma þegar ég heyri í því. Hann er nebblega sá eini sem ég þekki sem á mótorhjól.

BBIB 


Hæ!

Endilega skrifa í gestabókinaSmile

Veiðar

Það er rosalega erfitt að eiga allt í einu að verða veiðihundur þegar maður er þriggja ára. Ég fór aftur að veiða með pabba en ég var svo slasaður þegar ég kom heim. Það vantaði á mig heilu og hálfu þófana bara. Mamma þurfti að halda á mér út að pissa um kvöldið því það var svoo vont að labba. En mamma smurði mig allan og klappaði svo þetta var bærilegt meðan ég lá í bælinu mínu. Hvernig á maður eiginlega að vera kominn með góða "gönguskó" eftir labb á malbiki og einstaka sveitaferðir? Endaði með því að við heimsóttum vini mína á dýró og ég fékk verkjasprautu. Viku síðar fór kallinn aftur á veiðar, ég var nú ekki alveg viss um að mig langaði með, en lét mig hafa það. Það var miklu betra því það var enginn klaki og svona. Aðallega mosi. Mamma tók loforð af pabba að fylgjast með pótunum og setja mig í bílinn ef ég yrði sárfættur. En engann sáum við fuglinn frekar en venjulega, og ég var bara brattur þegar við komum heim.

Mamma er ennþá alltaf að læra. Hundleiðinlegt. Nenni ekki að segja meira um það.Devil

BBIB Snoopy                     rjupa_nytt


Vá!

Miðað við allann þann tíma sem mamma eyðir í tölvunni, hefði ég haldið að hún væri duglegri við að blogga. En nei, ekki stafur á bloggið í margar vikur. Hún bara situr í tölvunni og lærir og lærir. Nennir ekkert að leika og ég get ekki sagt að ég sé aðframkominn af þreytu eftir göngutúra. Hún hefur þó tekið upp á einu góðu eftir að hún byrjaði í þessum skóla, að kaupa handa mér nautabein. Nammi namm. Hef lúmskan grun um að það sé samt meira til að kaupa friðinn en af umhyggju fyrir mér, enda get ég dundað mér við að naga klukkutímunum saman.

 Bjarninn keppti á fimleikamóti á laugardaginn og varð í sjöunda sæti af 28 keppendum. Bara nokkuð gott held ég. Enda er maður í stórhættu á stofugólfinu fyrir svona mót.

Á föstudaginn síðasta fór ég í fyrsta skipti í veiðiferð. Vá hvað það var gaman. Veiddum nú ekkert við Pabbi, enda kallinn grænn á bakvið eyrun í þessum efnum. En við löbbuðum í marga klukkutíma og það var frábært. Ég var pínu sárfættur og smá þreyttur þegar ég kom heim, en ég fylgdist samt vel með þegar pabbi var að ganga frá dótinu svo hann stingi mig nú ekki af og færi aftur einn. Kannski förum við aftur um helgina jibbí.

Ég fór um daginn í nokkra tíma í hundafimi með Bjarnanum og það var mjög gaman. Pínu stressaður því það voru svo margir hundar. Lærði heilmikið af einhverjum æfingum. En við hættum af því að Bjarni er næstum helmingi léttari en ég og ég gleymdi alveg að hugsa útí það þegar ég varð rosa spenntur yfir lykt og svona. Mamma ætlar kannski að prufa að fara með mig sjálf á næsta námskeið.

Jæja best að fara að hleypa kellunni í lærdóminn aftur og ég ætla að halda áfram með nautið.

Sæl að sinni


Svona er ég

www.labradornet.com/index_e.html

Ferðalög og fleira.

Við erum aldeilis búin að gera víðreist í sumar. Fyrst vorum við í nokkra daga á Kirkjubæjarklaustri. Fórum að veiða og skoða Lakagíga meðal annars og ég synti í Skaftá. Ég lenti í smá vandræðum þar. Mamma vaknaði um miðja nótt og skildi ekki alveg af hverju. Hún heyrði mig svo væla og hélt kannski að ég hefði fengið í magann eða eitthvað því ég er yfirleitt ekki með vesen á nóttunni. En þegar hún kíkti undir borð í fellihýsinu þar sem ég sef,þá var enginn þar. Þá tók hún eftir því að vælið var úti. Þar sat ég blautur og hræddur. Þá hafði ég laumað mér út aðeins þegar Ómar fór að pissa og ekki komist inn aftur náttúrulega. Rosa var ég glaður að sjá mömmu mína og vildi helst sofa í fanginu á henni. Við fórum líka tvisvar til Nennu og Boggu í sveitina, það er alltaf gaman.

Vikuna fyrir verslunarmannahelgi lögðum við aftur í hann og þá norður. Byrjuðum á Hvammstanga og síðan Ásbyrgi. Þar rigndi og rigndi og ég var svo blautur. Ákváðum þá að skella okkur í sólina í Hallormstað. Það var allt annað líf. Ég var svo feginn að losna úr rigningunni að ég lá í sólinni í 20 stiga hita. Ekki í skugganum eins og venjulega. Þar fórum við í göngur og ég buslaði í leginum. Mjög gaman. Enduðum svo í Kjarnaskógi. Komum heim eftir 9 daga útilegu og sváfum eina nótt og skelltum okkur beint í Þjórsárdal eftir fótboltamót hjá Ómari. Það var nú bara í eina nótt sem betur fer. Ég er orðinn svolítið þreyttur á þessum endalausa akstri enda leiðist mér í bíl.

Nú fer sælan að verða búin. Mamma og strákarnir að byrja í skólanum svo ég þarf að fara að vera einn heima á daginn aftur. Það verður erfitt. Kveðja í bili.

 


Hundalífið

Fjölskyldan fór til útlanda í júní (ég fékk ekki að fara meðFrown) og Bella var áfram hjá mér. Ásta og Andy bjuggu bara hér á meðan,enda meira pláss fyrir 2 labradora. Þegar þau komu heim þá brunuðum við á Akranes á eitthvað fótboltamót þar sem Ómar Þór sparkaði bolta í tvo daga. Það er voða mikið fótbolta eitthvað þessa dagana á heimilinu. Mamma er alltaf að skutla strákunum fram og tilbaka. Og ég þarf að bíða heimaFrown En um síðustu helgi þá fórum við í hundaútilegu með retrieverdeildinni það var stuðSmile Allir hundarnir í stórfjölskyldunni voru líka þar. Þar voru veiðipróf og hundasýning. Ég tók nú ekki þátt í neinu samt. En ég fór með pabba og strákunum að veiða á sunnudeginum meðan mamma var að vinna á sýningunni. Þá fékk ég að hlaupa aðeins. Ég er að venjast þessu skrýtna húsi sem við sofum í þegar við förum í útilegu. Mér fannst samt tjaldið ágætt. Svo eru fínir sófar í því en ég má samt ekki sofa þar.Angry Skil ekki af hverju, það er enginn annar að nota þá á nóttunni. Fólkið mitt er alveg búið að gleyma að það eigi myndavél held ég. Alveg hætt að taka myndir. Kveðjur til næst.


Jæja...

Nú er aldeilis orðið langt síðan að nokkur hefur skrifað. Af mér er allt gott að frétta. Bella mamma er búin að vera í pössun hjá okkur í 2 vikur og verður í viku enn.. Það finnst mér skemmtilegt því þá hef ég alltaf félagsskap. Ég held samt að Bella skilji ekkert í þessu stússi á heimilinu. Mamma er alltaf að skutlast hingað og þangað með strákana, fimleika og fótbolta og svoleiðis. Ég er alveg orðinn vanur því. Við erum mikið úti í garði að leika og ég er bara búinn að vera stilltur með þið vitið...Það er af því að Bella er ekki að fara neitt í bili, ekkert stress eða kortér í þrjú dæmi í gangi. Það er líka búið að vera svo fínt veður svo við erum ekkert skítug. Mamma er samt að þusa yfir skúringum. Svo skruppum við í Mosfellsbæinn á landið okkar og skemmtum okkur við að sækja dummy í ánna og í frisby. Þar var einhver búinn að henda þremur pokum af úldinni loðnu og ég varð náttúrlega að velta mér aðeins upp úr því, enda hundur. Mamma var ekki glöð og spúlaði mig tvisvar með garðslöngunni og shampói en það var samt lýsislykt af mér. Hún er nú að hverfa eftir 3 daga. Mér fannst hundfúlt að hún skyldi þvo af mér þessa fínu lykt. Jæja nú ætla ég að hætta þessu röfli og vonandi tekur mamma myndir af okkur Bellu fyrir bloggið.

 


Næsta síða »

Höfundur

Snoopy Lillemann Hansen
Snoopy Lillemann Hansen
með hjálp balla spæó

Færsluflokkar

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 13263

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband